Gleðilegt nýtt ár

Það er orðið mjög langt síðan maður skrifaði eitthvað hérna. Það er búið að vera mjög mikið að gera hjá mér, þannig að ekki gafst tími til að setjast niður og skrifa eithvað hér á síðuna mína. Vonandi líður ekki eins langt á milli hér eftir. Skellti nokkrum myndum sem eru nokkra ára gamlar:) Myndasyrpa þegar fyrstu tjöld Hringhorna voru gerð. Þar má sjá mig, Sigurð Ara og tengda móður mína hana Írisi sem saumaði þessi tjöld ein að mestu leyti. Við hjálpuðum henni bara pínulítið.

bless í bili

Jón

Boginn

Þá er maður búinn að skjóta fyrstu örinni af boganum. Bogann fékk ég um daginn, hann er gerður úr aski og strengurinn er úr blöndu af hör og hampi. Síðan er strengurinn vaxborinn með bývaxi.  Á bogann er borin olífuolía. Mér var sagt að ég ætti að spenna hann svona ca. 200 sinnum áður en ég færi að skjóta af honum. Það þarf ekki að taka það fram að boginn og örvarnar eru handgerðar hérna heima af þeim nöfnunum Guðmundi Sigurðsyni og Guðmundi Steinari Jóhannsyni. Það kom mér á óvart hvað hann er öflugur því ég skaut yfir 50-60metra án þess að fullspenna hann. Þegar boginn er ekki í notkun á að láta hann hanga lóðrétt niður á strengnum, ekki spenntan heldur spennir maður stenginn af og húkkar honum upp á krók þannig að hann hangir á strengnum.

En nóg um þessa speki þar sem ég er nýgræðingur í þessu.

Kveðja JiG


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband